Í Vigdísarstofu verður sagan sögð í máli og myndum af því þegar Íslendingar brutu blað í heimssögunni árið 1980 með því að kjósa Vigdísi Finnbogadóttur forseta Íslands á tímum þegar óhugsandi þótti að kona gæti orðið þjóðkjörinn leiðtogi. Vigdís tók áskorun þjóðar sinnar og í kjölfarið breyttust viðhorfin svo rækilega að þegar hún lét af störfum varð barni á að spyrja: „Getur karl verið forseti"?
Við viljum heiðra þessa sögu með því að búa henni verðskuldaðan búning í Vigdísarstofu, sem staðsett verður í Alþjóðlegri tungumálamiðstöð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur sem rís innan tíðar við Háskóla Íslands. Sjáum til þess að sagan lifi með komandi kynslóðum, þegar við sem munum forsetakjör Vigdísar erum ekki lengur til staðar.
Þegar hafa stofnuninni verið gefnar 17 milljónir sérstaklega til Vigdísarstofu. Við stefnum að því að bæta fjörtíu milljónum við þá upphæð. Vegleg bók með nöfnum allra þeirra sem leggja þessu átaki lið mun verða meðal safngripa.
Stöndum saman og öflum þess sem uppá vantar til að gera Vigdísarstofu að minnisvarða um þjóðina sem hafði kjark til að hugsa út fyrir hefðina og konuna sem gekkst við ábyrgðinni, sem breytti sögu heimsbyggðarinnar.
Sýnum þakklæti okkar í verki með því að gera Vigdísarstofu að veruleika!